Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Foreldramorgunn: Fræðsla um matvendni barna með Sigrúnu Þorsteinsdóttur

23.08.2025
Foreldramorgunn: Fræðsla um matvendni barna með Sigrúnu ÞorsteinsdótturSigrún Þorsteinsdóttir verður með fróðlegt erindi um matvendni barna og hvað er til ráða. Einstakt tækifæri til þess að fræðast og fá góð ráð hjá okkar helsta sérfræðingi.
Sigrún er klínískur barnasálfræðingur með doktorsgráðu í heilsueflingu og starfar í offituteymi Barnaspítalans ásamt því að sinna rannsóknum á matvendni barna við Háskóla Íslands í samstarfi við Önnu Sigríði Ólafsdóttur prófessor í næringarfræði. Þær hafa sérstaklega sinnt rannsóknum á matvendni barna með taugaþroskaraskanir (m.a. ADHD og einhverfu).
Til baka
English
Hafðu samband