Bókasafnið er lokað vegna samkomubanns og mun opna mánudaginn 4.maí nk.
20.04.2020
![Bókasafnið er lokað vegna samkomubanns og mun opna mánudaginn 4.maí nk. Bókasafnið er lokað vegna samkomubanns og mun opna mánudaginn 4.maí nk.](/library/Images/Frettir/_mg_7686-3-_vigfusb_radhus_yfirlitsmynd.jpg?proc=ContentImage)
Bókasafn Garðabæjar er LOKAÐ vegna samkomubanns. Heilbrigðisráðuneytið hefur gefið það út að söfn eigi að vera LOKUÐ og því verða ENGIN gögn lánuð út í neinu formi og EKKI er tekið við gögnum úr útláni fyrr en að samkomubanni verður aflétt
- Bókasafnið opnar aftur mánudaginn 4.maí. Öllum viðburðum hefur verið frestað um sinn.
- Skiladagur allra bókasafnsgagna, sem á að skila á þessu tímabili þar sem samkomubann er í gildi, verður færður til fimmtudagsins 14.maí.
- Hægt er að leita eftir aðstoð bókasafnsins í síma 591 4550, með skilaboðum á Facebook og tölvupósti bokasafn@gardabaer.is á milli klukkan 10 og 16 alla virka daga.
- Vinsamlegast skilið ekki gögnum á meðan samkomubanni stendur. Bækur og önnur bókasafnsgögn safna ekki dagsektum vegna vanskila á þessu tímabili.
- Bókasafnið lánar ekki út gögn né keyrir heim.
- Við minnum á að Rafbókasafnið er alltaf opið, og aðgengilegt öllum sem eiga bókasafnskort í gildi. Rafbækur má lesa eða hlusta á beint úr tölvu eða í gegnum Libby appið á snjalltækjum. Nánari leiðbeiningar hér.