Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Bókasafnið á Garðatorgi og Álftanessafn eru lokuð 1.maí, en annars opið samkvæmt hefðbundnum afgreiðslutíma

27.04.2021

Fjöldatakmarkanir miðast nú við tuttugu manns og gildir þetta um einstaklinga fædda árið 2015 eða fyrr - 2ja metra regla og sótthreinsa hendur

Fjöldatakmarkanir miðast nú við tuttugu manns og gildir þetta um einstaklinga fædda árið 2015 eða fyrr.
Börn fædd 2015 eða síðar eru undanþegin ákvæðum um fjöldatakmörk, nálægðarmörk og grímuskyldu.
Bókasafnið á Garðatorgi og Álftanessafn eru opin samkvæmt hefðbundnum afgreiðslutíma.
Við gætum að hreinlæti og þrífum alla snertifleti reglulega með sótthreinsiefni. Bækur og önnur safngögn eru hreinsuð vandlega eins og venjulega þegar þeim er skilað.
Við bendum á að hægt er að endurnýja og taka frá gögn á mínum síðum á Leitir.is, eða senda tölvupóst á bokasafn@gardabaer.is.
Einnig er hægt að ná sér í lesefni á Rafbókasafninu (rafbokasafnid.is). Rafbókasafnið er opið öllum sem eru með gilt bókasafnsskírteini. Sjá leiðbeiningar hér.
Í ljósi aðstæðna er gestum bent á að hafa eftirfarandi í huga þegar þeir heimsækja safnið:
• Gestir sótthreinsi hendur þegar gengið er inn á safnið
• Virðum 2ja metra regluna
• Sýnum tillitssemi og þolinmæði
• Gestir eru hvattir að dvelja ekki lengi á safninu
• Gögnum skal skilað í sjálfsafgreiðslu.

Lesstofan Garðatorgi er opin til kl. 16 fyrir 18 ára og eldri. Takmörkum gesti við fjóra á lesstofu og þarf að gefa sig fram í afgreiðslu bókasafnsins.
Við erum öll almannavarnir. Sýnum hverju öðru tillitssemi og þolinmæði.

 

Til baka
English
Hafðu samband