Lokahátíð sumarlesturs
Mjög góð þátttaka var í sumarlestri bókasafnsins. 167 börn skráðu sig í sumarlesturinn í vor og 66 skiluðu inn lestrardagbók. Það er svipaður fjöldi og í fyrra. Ánægjulegt var að sjá að drengir tóku nú meiri þátt í sumarlestri en áður hefur verið og skipa þeir sér í efstu sæti í nokkrum aldursflokkum. Mesta þátttakan var í aldurshópunum sjö, átta og níu ára og í þeim aldurshópum voru veitt aukaverðlaun Allir þátttakendur fengu afhent viðurkenningarskjöl. Mestu lestrarhestarnir í ár eru þær Lovísa Rut Tjörvadóttir 13 ára sem las 12.409 bls. og Hugrún Gréta Arnardóttir 9 ára sem las 10.500 bls.
Aðrir efstir í hverjum árgangi voru:
6 ára Sonja Lind
7 ára Guðrún Ágústa
7 ára Hákon Orri
8 ára Aron Goði
8 ára Zakaría
9 ára Jóhanna María
9 ára Magnús Gunnar
10 ára Fjóla Ósk
11 ára Ipun Lahiru
12 ára Ragnheiður
Eftir verðlaunaafhendingu var dregið úr happdrættispotti, leikfélagið Draumar úr Garðabæ skemmti og að lokum var boðið upp á grillaðar pylsur.