Safnanótt 2012
SAFNANÓTT - Föstudagur 10. febrúar 2012
Bókasafn Garðabæjar, Garðatorgi 7, opið hús kl. 19:00 - 24:00
Kl. 20.00 Tónlistarflutningur.
Anna María Björnsdóttir jazzsöngkona flytur eigin lög.
Kl. 20:45 "Draugar, galdramenn og dulúðugir staðir í Garðabæ."
Guðlaugur R. Guðmundsson sagnfræðingur flytur fyrirlestur um efnið.
Kl. 21:45 Draugasögulestur í Króki á Garðaholti. *
Leiklistarnemendur í Fjölbrautaskóla Garðabæjar leiklesa draugasögu.
Bærinn Krókur opinn – boðið upp á kaffi.
*Rúta frá Bókasafni Garðabæjar kl. 21:30 og ferð tilbaka á Garðatorg að loknum leiklestri og skoðunarferð um Krók. Krókur á Garðaholti er lítill bárujárnsklæddur burstabær sem var endurbyggður úr torfbæ árið 1923. Gott dæmi um húsakosti og lifnaðarhætti alþýðufólks á fyrri hluta 20. aldar. Bílastæði við samkomuhúsið á Garðaholti.
Hönnunarsafn Íslands, Garðatorgi 1, opið hús kl. 19:00-24:00
Kl. 19:00 Opnun á nýrri sýningu - ,,Sjálfsagðir hlutir“
kl. 19:30 Fjölskyldusmiðja
Kl. 21:00 Myrkraleiðsögn í Hönnunarsafninu - ,,Húsgögnin í öðru ljósi“
Spennandi og óhefðbundin leiðsögn fyrir alla aldurshópa.
Kl. 22.30 Myrkraleiðsögn í Hönnunarsafninu - ,,Húsgögnin í öðru ljósi“
Spennandi og óhefðbundin leiðsögn fyrir alla aldurshópa.
Minjagarðurinn að Hofsstöðum, Kirkjulundi – opið allan sólarhinginn
Í garðinum eru minjar af landnámsskála frá 9. öld og fjölbreytt og skemmtileg margmiðlunarsýning sem er aðgengileg á snertiskjám.