Sumarlestur 2013
04.06.2013
Sumarlestur stendur yfir frá 10. júní til 16. ágúst. Markmiðið með sumarlestri er að hvetja börn til lesturs yfir sumartímann svo þau tapi ekki niður lestrarkunnáttu sinni í sumarfríinu. Góð þátttaka hefur verið í sumarlestri undanfarin ár og fjöldi þátttakenda aukist ár frá ári. Að þessu sinni eru börn á Álftanesi sérstaklega boðin velkomin til þátttöku. Sumarlestri lýkur með lokahátíð í ágúst þar sem afhent verða verðlaun og viðurkenningar og boðið upp á skemmtiatriði og veitingar. Í sumar verður Álftanessafn opið kl. 13-15 alla virka daga (18. júní - 31. júlí)
Sjá nánar á fésbókarsíðu bókasafnsins
Bókasafn Garðabæjar á facebook Bókasafn Garðabæjar