Takmarkaður afgreiðslutími vegna viðhalds
15.06.2015
Bókasafn Garðabæjar við Garðatorg, verður með takmarkaðan afgreiðslutíma dagana 29. júní til og með 3. júlí, vegna viðhalds. Lánþegum safnsins er bent á að þeir geta fengið lánuð bókasafnsgögn gegn framvísun bókasafnsskírteinis síns í Bókasafni Kópavogs og Bókasafni Hafnarfjarðar.
Þá verður lesstofa á 2. hæð Bókasafns Garðabæjar opin milli 15 og 18 alla dagana (gengið inn frá austurhlið safnsins) og þar verður hægt að skila bókum, en útlán verða eingöngu á barnabókum fyrir börn sem taka þátt í sumarlestri.
Bókasafn Álftanesssafns verður opið frá kl. 14 - 19 alla dagana.
Auk þess geta lánþegar skilað bókasafnsgögnum í Þjónustuver Garðabæjar á opnunartíma þess mán - fim milli 8 og 16 og föstudag milli 8 -14.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa í för með sér fyrir lánþega okkar.
Starfsfólk Bókasafns Garðabæjar.