Fjölskyldustemning á Bókasafni Garðabæjar, Garðatorgi í desember
Viðburðir á Bókasafni Garðabæjar, Garðatorgi í desember.
Það verður fjölskyldustemning á bókasafninu í desember. Fullt af nýjum bókum fyrir alla. Jólaföndur á borðum á laugardögum. Laugardaginn 5. desember verður safnið opið til klukkan 16:00 vegna jóladagskráar á Garðatorgi. Tendrað á jólatrénu klukkan 16:00.
Allir velkomnir á viðburði bókasafnsins á meðan húsrúm leyfir.
Laugardagur 5. des. kl. 15:00
Jólaleikritið Hvar er Stekkjastaur í flutningi Möguleikhússins á annari hæð bókasafnsins. Sýningartími um það bil 45 mínútur fyrir börn á aldrinum 2-9 ára.
Laugardagur 12. des. kl. 11:30
Jólasögustund
Höfundurinn Ómar R. Valdimarsson les upp úr nýrri bók sinni um jólasveinana; 13 skrýtnir jólasveinar.
Laugardagur 19.des. kl.11:30
Jólasögu- og söngstund
Þóranna Gunný Gunnarsdóttir útskrifuð af leiklistarbraut FG les jólasögu og syngur og spilar nokkur jólalög fyrir börnin. Jólaföndur í boði.Heitt á könnunni og piparkökur.