Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

16. nóvember kl. 17:00 skólakór, upplestur fyrir skólabörn og upplestur úr spennusögu fyrir fullorðna - Allir velkomnir

12.11.2016
16. nóvember kl. 17:00 skólakór, upplestur fyrir skólabörn og upplestur úr spennusögu fyrir fullorðna - Allir velkomnirÞað er svo margt spennandi um að vera hjá okkur á bókasafninu Garðatorgi núna í nóvember. Á degi íslenskrar tungu 16.nóvember verður upplestur fyrir börn og fullorðna og skólakór Hofsstaðaskóla, undir stjórn Unnar Þorgeirsdóttur, mun gleðja gesti og gangandi með ljúfum söng klukkan 17:00.
Kl. 18:00 Hildur Sif Thorarensen les úr nýrri spennusögu sinni Einfari.
Kl. 17:30 Helga Sv.Helgadóttir kynnir barnabókina Húsið á heimsenda. Myndskreytingar úr bókinni, gerðar af Katrínu Matthíasdóttur, verða til sýnis í barnadeildinni.
Álfabókasýning Guðlaugs Arasonar stendur út nóvember og fimmtudagskvöldið 24.nóvember verður rithöfundakvöld þar sem höfundar lesa úr nýjum verkum sínum. Verið velkomin!
Til baka
English
Hafðu samband