Hulda Hreindal Sigurðardóttir listamaður maímánaðar verður með sýningaropnun kl. 13, 6. maí.
03.05.2017
Hulda Hreindal Sigurðardóttir er listamaður maímánaðar á Bókasafni Garðabæjar í samstarfi við Grósku og opnar hún sýningu sína laugardaginn 6.maí kl.13. Boðið verður upp á kaffi og meðlæti og spjall við listamanninn. Allir velkomnir.Hulda flutti til Skotlands 1974, 14 ára gömul og fór á myndlistarbraut í Greenfaulds High School í Cumbernauld og hélt fyrstu einkasýninguna sína í bókasafni bæjarins tveimur árum síðar. Eftir útskrift hóf hún nám í listaháskóla í Dundee,og lauk þaðan BA námi í Textile design 1981 og flutti síðan til Íslands. Hélt hún þá yfirlitssýningu á Kjarvalsstöðum og tók þátt í samsýningum í Listmunahúsinu Lækjargötu og í Hafnarborg. Frá 2008 hefur hún verið með vinnustofu, fyrst í Dvergshúsinu í Hafnarfirði en síðan í Lyngás í Garðabæ og gerðist þá meðlimur í Grósku..
Síðustu ár hefur Hulda tekið þátt í fjölmörgum viðburðum og samsýningum, verið með einkasýningar og gjörninga og sótt fjölbreytt námskeið. Í fyrra fór hún í vinnuferð til lítils bæjar nyrst í Skotlandi sem kallast því skemmtilega nafni Gardenstown, s.s.Garðabær! Sýnir hún skissur sem hún vann í ferðinni og nokkur glerverk sem hún hefur unnið í bland við ryðgað járn.