Börn fædd 2016 fá bókapoka á Bókasafni Garðabæjar
23.05.2018
Til foreldra /forráðamanna 2ja ára barna í Garðabæ, fædd árið 2016
Í lestrarstefnu Garðabæjar er lögð áhersla á að upplýsa foreldra og aðra uppalendur um mikilvægi lestrar og vekja athygli á hver þáttur þeirra í lestrariðkun barna er mikilvægur.
Af því tilefni hefur bókasafnið, í samvinnu við skólaskrifstofu Garðabæjar, ákveðið að færa öllum 2ja ára börnum í Garðabæ og Álftanesi sem eru fædd árið 2016 bókapoka að gjöf. Pokinn inniheldur barnabók og upplýsingar um hvernig foreldrar geta stuðlað að betri málskilningi og málþroska barna sinna og undirbúið þau þannig undir lestrarnám. Barninu stendur einnig til boða að fá frítt bókasafnsskírteini.
Við bjóðum foreldrum / forráðamönnum viðkomandi barna, ásamt barni sínu, að koma í Bókasafn Garðabæjar á Garðatorgi 7 eða Álftanessafn við Eyvindarstaðaveg í Álftanesskóla og sækja bókapoka. Hægt er að sækja pokann hvenær sem er á opnunartíma safnanna fyrir 31. desember 2018.
Með bestu kveðju,
Margrét Sigurgeirsdóttir
forstöðumaður
Bókasafns Garðabæjar
Garðatorgi 7
S. 525 8550
Netfang: bokasafn@gardabaer.is
AFGREIÐSLUTÍMI
Bókasafn Garðabæjar v/Garðatorg 7, 210 Garðabæ:
Virka daga kl. 9-19
Laugardaga frá 1. sept.–31. maí kl. 11 -15
Fyrsta föstudag í hverjum mánuði kl. 11 -19
Álftanessafn v/Eyvindarstaðaveg Álftanesi:
Opið mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 16 -19
miðvikudaga kl. 16 -21
föstudaga kl. 16-18
Sumartími 15. júní til 15. ágúst: mánudaga til fimmtudaga kl. 16-19