Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Ævar Þór Benediktsson les upp úr nýrri bók laugardaginn 15.des. kl. 13:00

08.12.2018
Ævar Þór Benediktsson les upp úr nýrri bók laugardaginn 15.des. kl. 13:00

Ævar les upp fyrir börn, allir velkomnir

Ævar Þór Benediktsson (Ævar vísindamaður) kemur í heimsókn á Bókasafn Garðabæjar, Garðatorgi og les upp úr nýrri bók fyrir börn. Þitt eigið tímaferðalag er fimmta bókin í einum vinsælasta íslenska bókaflokki síðari ára. Fyrri bækurnar hafa hlotið bæði Bókaverðlaun barnanna og Bóksalaverðlaunin, og verið tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Barnabókaverðlauna Reykjavíkur. Þitt eigið tímaferðalag er öðruvísi en aðrar bækur. Hér ert þú söguhetjan og ræður ferðinni. Viltu hitta víkinga, Rómverja eða risaeðlur? Þorirðu að athuga hvað er um að vera á Jörðinni eftir 100 ár? Hvað með 1000? Passaðu bara að týna ekki tímavélinni svo þú komist örugglega heim aftur!

Til baka
English
Hafðu samband