Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Foreldraspjall - Kryddjurtir

13.03.2019
Foreldraspjall - Kryddjurtir

Ung börn og snjalltæki - Foreldraspjall kl. 10 fimmtudaginn 4.apríl

Hildur Halldórsdóttir frá Heimili og skóla mun fræða um notkun snjalltækja í uppeldi. Fræðslan verður miðuð út frá yngstu börnunum og byggð á bæklingnum Ung börn og snjalltæki—grunnur að góðri byrjun. Foreldrar og aðrir aðstandendur ungra barna innilega velkomin með krílin sín. Heitt á könnunni.

 

Kryddjurtir með Auði Rafnsdóttur 9.apríl kl. 18 - erindi á bókasafninu Garðatorgi 7 

Viltu rækta þínar eigin kryddjurtir, elda úr þeim, útbúa kryddolíur og mauk eða ilmolíur og sápur? Auður Rafnsdóttir er enginn nýgræðingur í ræktun kryddjurta. Auður heldur úti vinsælli síðu tileinkaðri kryddjurtum á Facebook, "Áhugafólk um kryddjurtaræktun" . Auður gaf út bókina "Kryddjurtarækt fyrir byrjendur" sem gefur einföld ráð við ræktun vinsælla matjurta, meðferð, umhirðu og notkun í matseld. Auður ætlar að halda erindi um kryddjurtir á Bókasafni Garðabæjar þriðjudaginn 9.apríl klukkan 18. Allir velkomnir og ókeypis aðgangur á meðan húsrúm leyfir.

Til baka
English
Hafðu samband