Skyndihjálparnámskeið í foreldraspjalli fimmtudaginn 17/10 klukkan 10:30
14.10.2019
Skyndihjálparnámskeið á vegum Rauða krossins fyrir foreldra ungra barna. Foreldrar og börn þeirra, verðandi foreldrar, afar og ömmur og aðrir áhugasamir velkomnir. Heitt á könnunni.
Foreldraspjall á bókasafninu Garðatorgi 7 einu sinni í mánuði á fimmtudögum klukkan 10:30 yfir vetrartímann
Viðburðir tengdir því eru auglýstir á Facebook bókasafnsins. Foreldraspjallið eru samverustundir fyrir foreldra og börn þeirra.Hentar þeim sem eru í fæðingarorlofi eða eru heimavinnandi.
Markmiðið með foreldraklúbbnum er að efla félagsleg tengsl foreldra og barna þeirra í Garðabæ. Hafa vettvang til að spjalla saman um allt milli himins og jarðar.
Það verður boðið upp á ýmsar fróðlegar kynningar um efni sem tengist barnauppeldi.
Ekki síst er mikið úrval til af bókum um börn og uppeldi.
Foreldrar, verðandi foreldrar, afar, ömmur og börn eru velkomin.