Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Spænska veikin - Höfundur fræðir og ræðir klukkan 18 þriðjudaginn 9.mars

06.03.2021
Spænska veikin - Höfundur fræðir og ræðir klukkan 18 þriðjudaginn 9.mars

Fróðleiksmoli á þriðjudegi

Gunnar Þór Bjarnason segir frá efni metsölubókar sinnar um Spænsku veikina. Enn er langur biðlisti á bókasafninu eftir bókinni!
Spænska veikin var mannskæðasta farsótt sögunnar og barst hingað til lands í miðju Kötlugosi á einu viðburðaríkasta ári tuttugustu aldar, 1918.
Var hægt að mæta þessari skelfilegu heimsplágu með markvissum sóttvörnum? Og að hvaða leyti er spænska veikin sambærileg við veirufaraldurinn sem gengið hefur yfir heimsbyggðina árið 2020?
Skráning nauðsynleg hér:
Skráningarform

eða í síma 591 4550, eða með tölvupósti bokasafn@gardabaer.is

Til baka
English
Hafðu samband