Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Leirlistasmiðja | Norræn bókmenntavika 14.-20.nóvember

15.11.2021
Leirlistasmiðja | Norræn bókmenntavika 14.-20.nóvember

Í ár bjóðum við upp á dagskrá í samstarfi við Norræna félagið í Garðabæ. Á fimmtudaginn klukkan 17:00 verður leirlistarsmiðja, ókeypis fyrir alla. Og á laugardag klukkan 11:15 verður Norrænt barnabíó og beint á eftir er Hnefatafl

Leirlist og Norræn goðafræði
Í tilefni Norrænnar bókmenntaviku býður Bókasafn Garðabæjar og Norræna félagið í Garðabæ upp á leirlistarsmiðju fyrir alla krakka með Björk Viggósdóttur, listamanni, fimmtudaginn 18. nóvember klukkan 17:00.
Unnið verður með arf norrænnar goðafræði og Völuspá og skapaðar fígúrur af ásum eða vanaættum. Og hver veit nema Ásgarður eða Askur Yggdrasill fái nýtt líf í leirnum?
Í lok smiðjunnar munu listamennirnir vinna með að búa til stop motion mynd úr leirlistarverkunum.
Smiðjan er ókeypis og opin öllum.

Björk Viggósdóttir (f. 1982) lauk B.A námi í myndlist árið 2006 frá Listaháskóla Íslands, mastersnámi í Hagnýtri menningarmiðlun (Culture and Communication) í Háskóla Íslands og Listkennslufræði í Listaháskóla Íslands og er með listkennsluréttindi á öllum skólastigum. Björk starfar bæði sem listamaður og listkennari í Myndlistaskólanum í Reykjavík.
Hún hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum hér á landi og víða erlendis.

Bíó klukkan 11:15 

Í tilefni Norrænnar bókmenntaviku býður Bókasafn Garðabæjar upp á barnabíó á kvikmyndina Bróðir minn ljónshjarta laugardaginn 20. nóvember kl. 11:15.  Hnefatafl, nútímatafl og aðrir leikir á vegum verkefnisins Við langeldinn/ við eldhúsborðið.

Til baka
English
Hafðu samband