Sumarbókaspjall 7.júní á Garðatorgi
03.06.2022
Þrír nýir höfundar sem gáfu út í vor – og sumarútgáfunni mæta á Bókasafn Garðabæjar og spjalla og lesa upp úr bókum sínum þriðjudaginn 7. Júní kl. 17:30.
Öll hjartanlega velkomin, heitt á könnunni.Heiða Vigdís Sigfúsdóttir bar sigur úr býtum í handritakeppni Forlagsins, Nýjar raddir. Skáldsaga hennar Getnaður kom út núna nýlega en hún inniheldur hispurslausar og bráðfyndnar ástarsögur um þrítugt fólk í Reykjavík sem fléttast saman á óvæntan hátt. Djammið dunar, en fullorðinsspressan fer sívaxandi.
Rebekka Sif Stefánsdóttir sendi frá sér sína fyrstu skáldsögu, Flot, í apríl á þessu ári. Þar tekst hún á við andlega erfiðleika persónunnar Fjólu á nístandi hátt. Þegar Fjóla byrjar að stunda flot að ráði sálfræðings á hún ekki von á því að enda sem starfsmaður hjá Reykjavík Float. Flotið verður miðpunkturinn í lífi hennar, rétt áður en það byrjar hægt og rólega að liðast í sundur. Vandamálin byrja að fljóta upp úr djúpinu og raunveruleikaskynjunin fer úr skorðum.
Díana Sjöfn Jóhannsdóttir gaf út sitt þriðja skáldverk, ljóðabókina Mamma þarf að sofa, í maí. Mamma þarf að sofa er þrískipt, nostalgísk úrvinnsla á sorg og söknuði, ást, minningum og móðurhlutverkinu. Ljóðverkið er áhrifamikið en stíllinn einkennist af hversdagslegum töfrum. Verkið er persónulegt, hjúpað stjörnum og vögguvísum, ást, vöfflulykt og efa.