Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Ísland á stríðstímum: Guðni Th. Jóhannesson fimmtudaginn 10.október klukkan 19

02.10.2024
Ísland á stríðstímum: Guðni Th. Jóhannesson fimmtudaginn 10.október klukkan 19 Garðbæingurinn, fyrrverandi forseti og prófessor í sagnfræði Guðni Th. Jóhannesson heldur erindi þar sem fjallað verður afdrif Íslands og Íslendinga í seinni heimsstyrjöldinni og hvernig við höfum viljað muna og segja þá sögu.
Reynsla okkar verður borin saman við þær hörmungar sem flestar aðrar þjóðir í Evrópu þurftu að þola í hildarleiknum. Erindi Guðna hefst klukkan 19 og er í samstarfi með Norræna félaginu í Garðabæ.
Einnig verður Lesró á annarri hæð frá 18-21.

Dagskrá langra fimmtudaga í október:


Fimmtudagurinn 17. október kl. 19:00
Seinni heimstyrjöldin í brennidepli. Norrænn leshringur með Jórunni Sigurðardóttur í samstarfi með Norræna félaginu í Garðabæ. Í þetta sinn mun Jórunn ræða bækurnar Sá sem blikkar er hræddur við dauðann eftir Knud Romer og Gáruð vötn eftir Kerstin Ekman. Athugið að nauðsynlegt er að skrá sig í leshringinn á netfangið asbjorgbj@gardabaer.is
Lesró á annarri hæð frá 18-21.

Fimmtudagurinn 24. október kl. 19:00
Kvikmyndasýning: Sýnd verður áhugaverð mynd þar sem umfjöllunarefnið verður Norðurlöndin á stríðstímum. Popp og gos verður á boðstólnum fyrir bíógesti.
Lesró á annarri hæð frá 18-21.

Fimmtudagurinn 31. október kl. 19:00
Í tilefni Hrekkjavökunnar býður bókasafnið gestum uppá hryllilegt erindi þar sem Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðingur fer með óhugnanlegar draugasögur og leiðir hræðilega draugagöngu uppí Minjagarð. Ekki fyrir viðkvæma.
Lesró á annarri hæð frá 18-21.
Til baka
English
Hafðu samband