Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Langir fimmtudagar í október á Bókasafni Garðabæjar

03.10.2024
Langir fimmtudagar í október á Bókasafni Garðabæjar

Langir fimmtudagar í október. Bókasafnið á Garðatorgi er opið til klukkan 21 öll fimmtudagskvöld í október. Bókasafnið býður upp á fjölbreytta dagskrá. Erindi um ástandið, stríðsárin á Íslandi, draugagang og sýnd verður stríðsmynd


Rökkrið færist yfir og þá er nú huggulegt að njóta góðra stunda á bókasafninu. Bókasafn Garðabæjar mun bjóða gestum og gangandi í heimsókn á fimmtudagskvöldum í október þar sem verður opið til kl. 21:00. Hægt verður að fræðast, skemmta sér í góðra vina hópi eða finna innri frið með því að mæta í Lesró uppi á annarri hæð.
Dagskrá:

Fimmtudagurinn 10. október kl. 19:00
Ísland á stríðstímum: Garðbæingurinn, fyrrverandi forseti og prófessor í sagnfræði Guðni Th. Jóhannesson heldur erindi þar sem fjallað verður afdrif Íslands og Íslendinga í seinni heimsstyrjöldinni og hvernig við höfum viljað muna og segja þá sögu. Reynsla okkar verður borin saman við þær hörmungar sem flestar aðrar þjóðir í Evrópu þurftu að þola í hildarleiknum. Erindi Guðna er í samstarfi með Norræna félaginu í Garðabæ.
Lesró á annarri hæð frá 18-21. Komdu að lesa og njóttu þagnarinnar í samvistum með öðrum lestrarhestum.
Fimmtudagurinn 17. október kl. 19:00
Seinni heimstyrjöldin í brennidepli. Norrænn leshringur með Jórunni Sigurðardóttur í samstarfi með Norræna félaginu í Garðabæ. Í þetta sinn mun Jórunn ræða bækurnar Sá sem blikkar er hræddur við dauðann eftir Knud Romer og Gáruð vötn eftir Kerstin Ekman. Athugið að nauðsynlegt er að skrá sig í leshringinn á netfangið asbjorgbj@gardabaer.is
Lesró á annarri hæð frá 18-21. Komdu að lesa og njóttu þagnarinnar í samvistum með öðrum lestrarhestum.
Fimmtudagurinn 24. október kl. 19:00
Kvikmyndasýning: Sýnd verður áhugaverð mynd þar sem umfjöllunarefnið verður Norðurlöndin á stríðstímum. Popp og gos verður á boðstólnum fyrir bíógesti.
Lesró á annarri hæð frá 18-21. Komdu að lesa og njóttu þagnarinnar í samvistum með öðrum lestrarhestum.
Fimmtudagurinn 31. október kl. 19:00
Í tilefni Hrekkjavökunnar býður bókasafnið gestum uppá hryllilegt erindi þar sem Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðingur fer með óhugnanlegar draugasögur og leiðir hræðilega draugagöngu upp í Minjagarð. Ekki fyrir viðkvæma.
Lesró á annarri hæð frá 18-21. Komdu að lesa og njóttu þagnarinnar í samvistum með öðrum lestrarhestum.

 

Liðið

Fimmtudagurinn 3. október kl. 19:00
Ástandið: Rithöfundurinn Guðrún Jónína Magnúsdóttir ræðir nýútkomna bók sína Rokið í stofunni sem fjallar um þrettán ára stúlku sem er handtekin og dæmd til dvalar á Kleppjárnsreykjum í Borgarfirði árið 1942. Jónína mun ræða um Ungmennadómstólinn, Jóhönnu Knudsen og það einelti, dómhörku og afleiðingar fyrir þær stúlkur sem sendar voru á hælið. Á eftir erindi mun Jónína gefa sér tíma í fyrirspurnir, spjall og einnig munu gestir geta fest kaup á bókinni.
Lesró á annarri hæð frá 18-21. Komdu að lesa og njóttu þagnarinnar í samvistum með öðrum lestrarhestum.

Til baka
English
Hafðu samband