Bókakynning og upplestur laugardaginn 2.nóvember klukkan 13-14
31.10.2024
Bláeyg er ævintýra- og spennusaga ætluð 10 til 13 ára börnum.
Höfundurinn Rósa Ólöf Ólafíudóttir segir stuttlega frá tilurð bókarinna og les upp valda kafla.
Bókin fékk útgáfustyrk á þessu ári úr sjóðnum Auður, barna- og ungmennabókasjóður
Kynningin fer fram í Svítunni 1.hæð bókasafnsins á Garðatorgi 7.
Eftirfarandi eru umsagnir Þóru Þorgilsdóttur 12 ára og Péturs Atla Margrétarsonar 10 ára:
„Mér fannst hún rosa góð því að hún hélt mér spenntri." „…þá var þetta örugglega ein af bestu sögum sem ég hef lesið og ég myndi mæla með henni." Þóra Þorgilsdóttir, 12 ára.
„Mjög góð. Spennandi söguþráður. Ævintýraleg og skemmtileg saga. Ávinabindandi að lesa söguna." Pétur Atli Margrétarson, 10 ára.