Föstudaginn 7.febrúar - Fjölskyldubingó, skólakór, spákona og Tríó Margrétar Eirar
Safnanótt á Bókasafni Garðabæjar á milli klukkan 17 og 20 - Tríó Margrétar Eirar og fjölskyldustund
Dagskrá Bókasafns Garðabæjar á Safnanótt
• Kl. 17.00 Skólakór Sjálandsskóla
Kórinn flytur lög undir stjórn Ólafs Schram.
• Kl. 17.15-18.00 Fjölskyldubingó
Fjörugt bingó með skemmtilegum vinningum sem kostar ekki krónu.
• Kl. 18.00-20.00 Spákona - örspá fyrir gesti Katrín Sjöfn Sveinbjörnsdóttir Tarotspámiðill og reikimeistari skyggnist inn í dulheima tarotsins. Skráning í afgreiðslu safnsins.
• Kl. 19.00-20.00 Tríó Margrét Eir
Gítarleikarinn Andrés Þór og bassaleikarinn Þorgrímur Jónsson leika með Margréti Eir. Njótum jazz, notalegrar stemningar og léttra veitinga á safninu.
Dagskrá Bókasafns Garðabæjar er frá 17.00 -20.00, síðan geta gestir og gangandi fært sig Hönnunarsafn Íslands, Garðatorgi 1 en þar hefst dagskrá kl. 20.00 og lýkur kl. 22.00. Heildardagskrá Safnanætur á Höfuðborgarsvæðinu má kynna sér á vetrarhatid.is