Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Plokkbingó allan daginn

16.04.2025
Plokkbingó allan daginn

Miðvikudaginn 23.apríl er í boði plokkbingó - dregið verður úr bingói kl. 18

Vika 17 er alþjóðleg vika heimsmarkmiðanna á bókasöfnum. Í tilefni vikunnar mun Bókasafn Garðabæjar bjóða uppá plokkbingó síðasta vetrardag.
Hægt verður að nálgast plokkstangir, poka og bingó spjöld allan daginn og bókasafnið mun svo bjóða uppá stórglæsilega ruslaköku, djús og kaffi fyrir áhugasama og duglega plokkara frá klukkan 16-18.
Klukkan 18 verða svo þrír vinningshafar dregnir úr skiluðum bingó spjöldum og fá glaðning að launum.
Vika 17 á uppruna sinn að rekja til Danmerkur en er í dag að finna á öllum Norðurlöndunum.
Nánari upplýsingar um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna má finna á heimsmarkmidin.is
Litter Bingo for the whole family on week 17.
Plucking rods, trash bags and bingo cards will be available for the whole day. From 16-18 the library will offer a magnificent trashcake, juice and coffee for hardworking litter pickers. At 18 we will draw 3 winners from filled Bingo cards.

Til baka
English
Hafðu samband