Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Fjölskyldujógastund á Garðatorgi með Halldóru Mark

20.05.2025
Fjölskyldujógastund á Garðatorgi með Halldóru Mark

Fjölskyldujógastund með Halldóru Mark Laugardaginn 24.maí klukkan 11:15 til 12.

Halldóra Mark, leiðir tímann sem byrjar á stuttri kynningu og upphitun. Síðan taka jógaæfingar og leikir við sem kenndar eru með leikrænu ívafi og endar jógað á slökun og stuttri hugleiðslu.

Meginmarkmið tímans er að fullorðnir og börn eiga stund saman og kynnist einföldum og skemmtilegum jógaæfingum.

Nauðsynlegt er að koma með eigin jógamottur 🙂

Halldóra er tveggja barna móðir og lærður jógakennari fyrir börn og fullorðna. Hún hefur kennta jóga á ólíkum stofnunum og jógastúdíóum víða um land, ásamt því að skipuleggja fjölskyldujóga á fjölbreyttum menningartengdum viðburðum síðan 2015.

Helsti innblásturinn hennar Halldóru á rætur sínar í æsku hennar í sveitinni þar sem hún lifði í flæði við náttúru og dýr. Þar fyrir utan hefur hún lært leiklist og uppeldisfræði sem tvinna saman leikgleðina og fræðin. Hún brennur fyrir samveru foreldra og barna til að styrkja tengsl þeirra dags daglega.

---English---
Yoga for the whole family with Halldóra Mark.

Please bring your own yoga mats for the class 🙂
Til baka
English
Hafðu samband