Sumarlestur Bókasafns Garðabæjar í allt sumar fyrir grunnskólabörn

Sumarlestur og allskonar afþreying er fyrir öll börn á grunnskólaaldri á Bókasafni Garðabæjar í sumar
Sumarlestur er fyrir öll börn á grunnskólaaldri og ekki síst þau sem eru að læra að lesa. Sumarlestur hefur það að markmiði að hvetja til lesturs í sumarfríi skólanna og þannig viðhalda og auka við þá lestrarfærni sem börnin hafa öðlast yfir veturinn.
Lestur eflir málþroska, bætir orðaforða, eykur þekkingu, auðveldar nám og örvar ímyndunaraflið.
Skráning í sumarlestur á Bókasafni Garðabæjar hefst 31.maí á Garðatorgi. Þá mega krakkar mæta með foreldrum eða forráðamönnum á bókasafnið og skrá sig. Krakkar sem hafa aldur til geta að sjálfsögðu komið án fylgdar fullorðinna.
Það er hægt að skrá sig í allt sumar því það er aldrei of seint að byrja. Þegar börnin skrá sig til þátttöku fá þau afhenta lestrardagbók. Í hana skrá þau bækurnar sem þau lesa í sumar og fá límmiða við hverja komu á bókasafnið.
Þegar þau hafa lesið bók mega þau skrifa umsögn og setja í lukkukassa sem er í bókasafninu. Við drögum heppinn lestrardreka í hverri viku og fær sá eða sú bók í verðlaun.
Uppskeruhátíð verður haldin 23.ágúst og þá fá allir virkir þátttakendur glaðning og lestrarárangrinum verður fagnað með skemmtiatriðum og góðgæti.
Allar upplýsingar er varða persónu verða nýttar til tölulegrar úrvinnslu gagna. Þeim verður ekki deilt með þriðja aðila og eytt að sumarlestri loknum.