Álftanessafn í sumar

Miðvikudaga er ljósaborð og segulkubbar, fimmtudaga er útidót og leikir í boði frá klukkan 14 til 17 frá 11.júní til 21.ágúst.
Ljósaborð og segulkubbar á Álftanessafni
Hvað er skemmtilegra en að leika sér með ljósaborð og segulkubba? Við dimmum ljósin þannig að hægt er að leika sér með form og liti og sjá hvernig ljósið varpast í gegnum kubbana. Alla miðvikudaga klukkan 14 til 17 í sumar.
Minnum krakka á sem taka þátt í Sumarlestri Bókasafns Garðabæjar að skila inn umsagnarmiðum fyrir klukkan 18 á miðvikudögum á Álftanessafni svo miðinn komist í útdrátt vikunnar.
-English-
Fun in the dark with light tables and magnetic tiles. All Wednesday from 14-17 this summer.
Útileikir á Álftanessafni
Útileikir: Boðið verður upp á snú snú, sippó, útikrítar og margt annað. Allir krakkar velkomnir.
Á hverjum fimmtudegi frá klukkan 14 til 17 í sumar.
-English-
Outdoor games with jump rope, chalk and much more. All children welcome.
Thursdays from 14-17 this summer.