Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Sumarföndur, útileikir, leshringur, þrívíddarprent, spilafjör, ljósaborð og segulkubbar í allt sumar

03.06.2025
Sumarföndur, útileikir, leshringur, þrívíddarprent, spilafjör, ljósaborð og segulkubbar í allt sumar

Margt í boði fyrir grunnskólabörn í sumar - Bókasafn Garðabæjar er heill ævintýraheimur frá 10.júní til 21.ágúst

Þrívíddarprent alla mánudaga og þriðjudaga klukkan 10 til 12 á Garðatorgi. Nýtt prent í hverri viku.

Þriðjudagsleikar klukkan 13 til 15: Útileikir á Garðatorgi
Stuð og stemmning í útileikjum með starfsfólki Bókasafns Garðabæjar á Garðatorgi. Boðið verður upp á tónlist, útikeilu, teygjó, snú snú, krítar og margt annað.  

Ljósaborð og segulkubbar á Garðatorgi
Hvað er skemmtilegra en að leika sér með ljósaborð og segulkubba? Við dimmum ljósin þannig að hægt er að leika sér með form og liti og sjá hvernig ljósið varpast í gegnum kubbana. Það verður í boði alla mánudaga klukkan 13 til 15 og miðvikudaga klukkan 10 til 12 í sumar.

Lesum saman: Leshringur með barninu á Garðatorgi
Leshringurinn Lesum saman er ætlaður fyrir krakka á aldrinum 6-12 ára þar sem þau taka með sér eldri lesfélaga (foreldri, ömmu, afa, frænku, frænda, eldri systkini o.s.frv.). Leshringnum sem verður stýrt af starfsfólki bókasafnsins og hefur þann skemmtilega tilgang að búa til umhverfi þar sem þátttakendur eiga saman gæðastund þar þeir fá aðstoð við að velja sér lesefni og rætt verður saman um bækur á léttum nótum.
Leshringurinn verður á hverjum miðvikudegi í sumar frá klukkan 14-15

Sumarföndur á Garðatorgi fyrir káta krakka Þar sem grunnskólabörnum stendur til boða að föndra á milli klukkan 10 og 12 í allt sumar. Lestrardreki vikunnar er dreginn í lokin klukkan 12 og hlýtur glaðning að launum.

Spilafjör á Garðatorgi
Fjölbreytt og fjörug borðspil í boði fyrir börn og fullorðna og starfsfólk aðstoðar eftir þörfum alla fimmtudaga klukkan 13 til 15.

Sumarlestur fyrir grunnskólabörn í allt sumar. 

Einnig ýmislegt í boði á Álftanessafni frá 11.júní til 21.ágúst:

Ljósaborð og segulkubbar á Álftanessafni
Við dimmum ljósin þannig að hægt er að leika sér með form og liti og sjá hvernig ljósið varpast í gegnum kubbana. Alla miðvikudaga klukkan 14 til 17 í sumar.

Útileikir á Álftanessafni
Útileikir: Boðið verður upp á snú snú, sippó, krítar og margt annað. Á hverjum fimmtudegi frá klukkan 14 til 17 frá í sumar.

Til baka
English
Hafðu samband